Skilmálar

Vöruskilmálar

Með því að hagnýta sér vefverslun E-verk ehf. samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála sem um viðskiptin gilda.

Þar sem lög áskilja neytendum meiri rétt en tilgreindur er í skilmálum þessum ganga lögin framar.

Gilda skilmálarnir að öðru leyti um viðskiptin.

Verð, myndir og vörulýsingar á netinu eru birtar með fyrirvara um villur.

E-verk ehf. áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu pantana, t.d. vegna rangra verðupplýsinga.

Vara er eign seljanda uns greitt hefur verið fyrir hana að fullu.

Vöruverð og framboð

Verð hverrar vöru er sýnilegt í vefversluninni með virðisaukaskatti og án flutningskostnaðar.
Verð vöru getur breyst fyrirvaralaust. Kaupandi greiðir það verð sem er í gildi við staðfestingu á kaupum.

Ef lítið er til af vörunni þegar hún er pöntuð er ekki hægt að tryggja að hún sé til þegar gengið er frá pöntuninni og tekur E-verk ehf. ekki ábyrgð á því.

Mun aðili á vegum E-verk ehf. þá vera í sambandi við kaupanda og reyna að finna sambærilega vöru eða leysa úr því máli eins og hægt er. Ef mistök eða rangar upplýsingar hafa verið birtar er það leiðrétt eins fljótt og auðið er.

Vöruskil og skipti

Öllum óskemmdum og ónotuðum vörum í upprunalegum pakkningum má skila innan 14 daga frá kaupum með framvísun kvittunar. Skila má vörunum að Holtsmúla í Skagafirði og er varan endurgreidd eða andvirði hennar lagt inn á reikning viðskiptavinar. Skilavara skal vera söluhæf, ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Allir fylgihlutir þurfa að vera með þegar að vöru er skilað. Varan er endurgreidd á því verði sem hún er hverju sinni nema kvittun sýni fram á annað verð. Kaupandi greiðir sendingarkostnað fyrir vöru sem á að skila. E-verk ehf. greiðir sendingarkostnað ef um galla er að ræða. Er E-verk ehf. heimilt að óska eftir útskýringum neytenda á vöruskilum. Áskilur E-verk ehf. sér rétt til þess að krefja kaupanda um kostnað vegna afpöntunar fyrir afhendingu leiði afpöntun til tjóns fyrir E-verk ehf. Enginn skilaréttur er á vörum sem rýrna eða úreldast fljótt, á sérpöntunum, á vörum sem eru innsiglaðar og verða ekki seldar ef innsigli er rofið eða í öðrum sambærilegum tilvikum. Ef vara telst sannarlega gölluð fæst henni skipt í nýja vöru eða skilað gegn fullri endurgreiðslu.

ATH skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru.

Skil á vörum eru sendar til:
E-verk ehf.
Holtsmúla
551 Sauðárkróki

 

Ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðir seljanda eru í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Einstakar vörur eða vörumerki hafa lengri ábyrgðartíma. Er slíkt tekið fram í hverju tilfelli fyrir sig. Ábyrgð vegna galla er 30 dagar frá því að kaupandi fékk vöru afhenta nema um sé að ræða neytanda sem nýtur betri réttar samkvæmt lögum um neytendakaup. Kvörtun neytenda vegna galla sem berst eftir að tvö ár eru liðin frá því að hann veitti söluhlut viðtöku verður ekki tekin til greina nema veitt hafi verið sérstök ábyrgð á viðkomandi söluhlut.

Kaupandi skal við móttöku vöru athuga án tafar og innan eðlilegra tímamarka hvort varan sé ógölluð og í samræmi við pöntun. Athugasemd skal gera innan tveggja mánaða.
Ábyrgð er ekki staðfest nema að kvittun fyrir kaupum sé framvísað.
Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Þá fellur ábyrgð úr gildi ef átt hefur verið við vöru á verkstæði án samþykkis seljanda. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar á vöru eða að vara orðið fyrir hnjaski.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, innan eðlilegra tímamarka.
Seljandi ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá seljanda til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Afhending vöru

Seljandi leitast við að afhenda vöru innan 1–4 daga, frá því pöntun er móttekin og greitt hefur verið fyrir vöruna. Kaupandi velur sendingarmáta, það val getur haft áhrif á afhendingartíma.

Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Seljandi afhendir aðeins vörur innanlands.

Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá E-verk ehf. til viðkomandi, er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandinn gefur upp í tengslum við viðskiptin. Meðferð allra persónuupplýsinga er í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd.

Lög og varnarþing

Um samning þennan gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur um efni hans skal hann borinn undir héraðsdóm Norðurlands Vestra.